Ákvörðun um leyfilegan heildarafla 2013/2014
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur tekið ákvörðun um heildarafla tiltekinna fisktegunda á næsta fiskveiðiári 2013/2014.
Almennt ástand fiskistofna á Íslandsmiðum verður að teljast býsna gott og jafnvel öfundsvert samkvæmt nýjustu ástandsskýrslu Hafrannsóknastofnunar. Sú stefna hefur verið mörkuð um árabil að fylgja svo sem kostur er vísindalegri ráðgjöf og má fullyrða að það sé meginástæða þessa góða árangurs. Um þessa stefnu hefur verið vaxandi samstaða í þjóðfélaginu og ekki síst meðal flestra hagsmunaaðila.
Það er eftir sem áður mikilvægt að fara reglulega yfir hvaða aðferðum er beitt og eiga samtal við greinina sjálfa og aðra um rannsóknir og ráðgjöf. Reynslan af langtíma nýtingarstefnu og aflareglu í þorski hefur fram að þessu verið mjög góð, þótt sumir hafi viljað fara hraðar í sakirnar. Á þessu ári er unnið að endurskoðun á þessari aflareglu og mun Hafrannsóknastofnun, án alls vafa, hafa um það samráð við hagsmunaaðila, svo sem mögulegt er. Til viðbótar má nefna sem þekkt er að nú er einnig í gildi langtíma nýtingarstefna með aflareglu fyrir ýsu og ufsa og eftir áramót er þess að vænta að Alþjóðahafrannsóknaráðið leggi formlegt mat á tillögu stjórnvalda um langtímanýtingarstefnu og aflareglu fyrir gullkarfa.
Við ákvörðun heildarafla í þetta skiptið er gengið lengra í þessa átt en nokkru sinni fyrr og er ákvörðun fyrir stofna er lúta veiðistýringu með aflahlutdeild nú í reynd sú hina sama og ráðgjöfin. Það er mat ráðherra að mikilvægt sé að vísindaleg ráðgjöf sé leiðarljós okkar við þessa ákvarðanatöku.
Það eru jákvæð tíðindi að leyfilegur heildarafli eykst í þorski, ýsu, ufsa, gullkarfa, þykkvalúru, sólkola, síld og löngu. Heildaraflinn stendur í stað eða lækkar lítillega í öðrum tegundum.
Áætluð áhrif þeirrar ákvörðunar um heildarafla sem hér greinir er um 15 milljarða aukning á útflutningsverðmætum sjávarafurða. Þetta samsvarar um það bil 2,4% aukningu í útflutningsverðmætum vöru frá landinu að öðru óbreyttu.
Í töflu hér á eftir, má sjá ákvörðun fyrir einstaka fisktegundir samanborið við ráðgjöf. Úr töflunni má lesa að heildarafli í þorski, löngu og keilu er aðeins lægri en ráðgjöfin. Í þessum tegundum er að hluta tekið tillit til veiða Norðmanna og Færeyinga í lögsögunni. Ákvörðun um heildarafla í deilistofnum miðast við almanaksár og er hennar því ekki að vænta fyrr en í vetur og ákvörðun varðandi hrognkelsi er tekin í byrjun næsta árs. Leyfilegur heildarafli í grálúðu tekur mið af tvíhliðasamningi á milli Íslands og Grænlands um grálúðuveiðar.
Ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar | Heildar-aflamark | Ákvörðun um heildarafla | ||
2013/2014 | 2012/2013 | 2012/2013 | 2013/2014 | |
Þorskur | 215 | 196 | 195,5 | 214,4 |
Ýsa | 38 | 32 | 36 | 38 |
Ufsi | 57 | 49 | 50 | 57 |
Gullkarfi | 52 | 45 | 45 | 52 |
Djúpkarfi | 10 | 10 | 10 | 10 |
Grálúða | 20 | 20 | 28(14.7) | 12,48 |
Skarkoli | 6,5 | 6,5 | 6,5 | 6,5 |
Sandkoli | 0,5 | 0,5 | 0,5 | 0,5 |
Skrápflúra | 0,2 | 0,2 | 0,2 | 0,2 |
Langlúra | 1,1 | 1,1 | 1,3 | 1,1 |
Þykkvalúra | 1,6 | 1,4 | 1,4 | 1,6 |
Steinbítur | 7,5 | 7,5 | 8,5 | 7,5 |
Síld | 87 | 67 | 64 | 87 |
Langa | 14 | 12 | 11,5 | 13,5 |
Keila | 6,3 | 6,7 | 6,4 | 5,9 |
Skötuselur | 1,5 | 1 | 1,8 | 1,5 |
Humar | 1,75 | 1,9 | 1,9 | 1,75 |
Úthafsrækjuveiðar
Ekki hefur verið gefinn út leyfilegur heildarafli fyrir rækju á djúpslóð (úthafsrækju) sl. þrjú ár og hafa veiðar á henni verið frjálsar. Á vormánuðum var ljóst að afli var kominn að ráðgjöf. Þó var ákveðið að veiðar skyldu ekki stöðvaðar fyrr en 1. júlí. Líkast til er umframveiði samanlagt á úthafsrækju og rækju frá miðunum við Snæfellsnes á þessu fiskveiðiári tæplega 40% umfram ráðgjöf og því er ljóst að bregðast þarf við. Fyrir liggur vilji sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um að veiðarnar lúti stjórn að nýju. Viðfangsefnin því tengd eru flókin og eru nú til lögfræðilegar skoðunar. Af þessum sökum er ekki er gefinn út leyfilegur heildarafli í úthafsrækju að sinni.