Hoppa yfir valmynd
5. júlí 2013 Atvinnuvegaráðuneytið

Fréttatilkynning frá ráðherra sjávarútvegs- og landbúnaðarmála – Ný reglugerð um bann við hvalveiðum á tilteknum svæðum

Í dag var gefin út reglugerð sem færir bannsvæði hvalveiða í Faxaflóa til fyrra horfs, til samræmis við þá ráðgjöf sem fyrir liggur.

Þessi breyting fellir úr gildi ákvörðun sem fyrrverandi ráðherra tók í maí sl.  Sigurður Ingi, sjávarútvegs- og landbúnaðaráðherra hefur farið yfir grundvöll framangreindrar ákvörðunar og er niðurstaðan sú að hún hafi ekki verið tekin á málefnalegum forsendum.

Nær 80% allra hrefna sem veiddar hafa verið í Faxaflóa undanfarin ár eru fengnar á svæði sem með ákvörðuninni frá því í maí s.l. var bannað að stunda hrefnuveiðar á. Með henni var verulega að hagsmunum veiðanna vegið. Sjá myndir að neðan er sýna hrefnuveiðar í Faxaflóa 2010-2012.

Í fréttatilkynningu sem fylgdi þessari ákvörðun í maí s.l. kemur fram að við ákvörðun um afmörkun griðasvæðisins í Faxaflóa hafði þáverandi ráðherra að leiðarljósi hagsmuni hvalaskoðunar- og hrefnuveiðimanna og að jafnframt væri stuðst við tillögur meirihluta nefndar sem hafði verið falið að fjalla um það hvernig mörk milli hvalaskoðunar og hvalveiða skyldu afmörkuð í Faxaflóa. Tiltekið var að ákvörðun ráðherrans um nýtt griðasvæði hvalveiða í Faxaflóa gengi skemmra en tillögur meirihluta nefndarinnar. Nýtt griðasvæði hvala í Faxaflóa skyldi nú afmarkast frá Garðskagavita og beina línu norður að Skógarnesi.

Ákvörðunin í maí s.l. var ekki í samræmi við tillögur Hafrannsóknastofnunar um afmörkun svæða til hvalaskoðunar frá mars 2009. Eins lá fyrir álit stofnunarinnar frá 2012 um að ekki hafi verið sýnt fram á að meint aukin fælni hrefnu í Faxaflóa stafi af hvalveiðum  á veiðisvæðinu.

Það er mat ráðherra að með þessari ákvörðun frá því í maí s.l. hafi hvorki verið horft til vísindalegra sjónarmiða né hagsmuna hrefnuveiða á svæðinu.

Sem fyrr er mikilvægt að stunda rannsóknir á hrefnu og að þær ákvarðanir sem teknar eru varðandi nýtingu þeirra, líkt og annarra sjávardýra, byggi á vísindalegum grunni.

Hrefnuveiði í Faxaflóa 2010











Hrefnuveiði í Faxaflóa 2010. Bláa línan markar svæði skv. reglugerð 469/2013, en sú rauða markar svæði eins og það var fyrir setningu hennar og eins og það verður með nýrri reglugerð. Svörtu punktarnir sýna hvar hrefnan hefur veiðst.

 

Hrefnuveiði í Faxaflóa 2011

Hrefnuveiði í Faxaflóa 2011. Bláa línan markar svæði skv. reglugerð 469/2013, en sú rauða markar svæði eins og það var fyrir setningu hennar og eins og það verður með nýrri reglugerð. Svörtu punktarnir sýna hvar hrefnan hefur veiðst.

 Hrefnuveiði í Faxaflóa 2012












Hrefnuveiði í Faxaflóa 2012. Bláa línan markar svæði skv. reglugerð 469/2013, en sú rauða markar svæði eins og það var fyrir setningu hennar og eins og það verður með nýrri reglugerð. Svörtu punktarnir sýna hvar hrefnan hefur veiðst.


Sjá nánar hér

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta