Iðnaðar- og viðskiptaráðherra hitti umhverfisráðherra Japans
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, tók á móti Nobuteru Ishihara, umhverfisráðherra Japans ásamt sendinefnd í Bláa lóninu föstudagnn 26. júlí þar sem ráðherrarnir áttu spjall um orkunýtingu Íslendinga á sviði jarðvarma og þá möguleika sem af þeirri nýtingu skapast.
Ishihara kom hingað til lands ásamt eiginkonu sinni og tíu manna sendinefnd til að kynna sér það sem Íslendingar eru að gera á sviði jarðvarmanýtingar, en auðlindanýting er hluti af verksviði umhverfisráðuneytisins í Japan.
Ásamt því að fá kynningu á Bláa lóninu frá Magneu Guðmundsdóttur, yfirmanni samskiptamála í Bláa lóninu, fékk ráðherrann stutta kynningu á HS-orku frá Júlíusi Jónssyni, forstjóra fyrirtækisins.
Nokkur umræða er í Japan um þessar mundir, og hefur verið allt frá kjarnorkuslysinu í Fukushima í mars 2011, um að nýta jarðhita enn frekar en nú er gert til raforkuframleiðslu. Stærstur hluti þeirra orkuauðlinda eru innan þjóðgarða og meðal þess sem ráðherrann kynnti sér í ferð sinni hingað var sambýli Nesjavallavirkjunar og þjóðgarðsins á Þingvöllum. Hann kom einnig við í Hellisheiðarvirkjun, á Þingvöllum, Geysi og Gullfossi.
Ráðherrann hélt ásamt sendinefnd af landi brott í morgun.