Breyting á samkomlagi um landanir grænlenskra skipa sem stunda makrílveiðar í grænlenskri lögsögu
Samkvæmt samkomulagi Íslands og Grænlands frá því í apríl á þessu ári var heimilt að grænlensk og íslensk skip gætu landað allt að 12.000 lestum af makríl veiddum í grænlenskri lögsögu í íslenskum höfnum. Almenna reglan er sú að erlendum skipum sem stunda veiðar úr fiskistofnum, sem veiðast bæði innan og utan lögsögu Íslands, hefur ekki verið heimilt að landa afla sínum í höfnum hér á landi nema íslensk stjórnvöld hafi samið um nýtingu viðkomandi stofns.
Í ljósi þess að landfræðilegar aðstæður og hafnleysi við Austur Grænland gera Grænlendingum þessar veiðar sérstaklega erfiðar án aðgangi að þjónustu í íslenskum höfnum, hefur sjávarútvegsráðherra ákveðið að nýta heimild í lögum til þess að rýmka þessar reglur á þann hátt að grænlenskum skipum verði heimilt að landa makríl hér á landi. Er þetta gert undir fyrrnefndu tvíhliðasamkomulagi á milli Íslands og Grænlands en verður endurskoðað fyrir makrílvertíð næsta árs.