Opinn fundur um áherslur í markaðsstarfi Íslands
Miðvikudaginn 11. september kl. 15-16:30 verður opinn fundur í Hörpu þar sem kynntar verða áherslur í markaðsstarfi Íslands - allt árið á vetri komandi og rýnt í árangur ferðaþjónustunnar með hliðsjón af þeim markmiðum sem sett hafa verið.
Fundurinn er opinn öllum sem áhugasamir eru um málefnið - en viðkomandi skulu skrá sig til leiks á [email protected]
Dagskráin er eftirfarandi:
- Opnunarorð. Helga Haraldsdóttir, formaður stjórnar Ísland- allt árið
- Árangur íslenskrar ferðaþjónustu. Árni Gunnarsson, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar.
- Markaðsáherslur Ísland – allt árið 2013-2014. Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður ferðaþjónustu og skapandi greina, Íslandsstofu
- Lokaorð. Ragnheiður Elín Árnadóttir, ráðherra ferðamála
Fundarstjóri er Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri N1.
Léttar veitingar í boði.