Hoppa yfir valmynd
13. september 2013 Atvinnuvegaráðuneytið

Mjólk og mjólkurafurðir hækka í verði um 3,1%

Verðlagsnefnd búvara hefur tekið samhljóða ákvörðun um að heildsöluverð á mjólk og mjólkurafurðum, sem nefndin verðleggur, hækki 1. október um 3,1%.

Afurðastöðvaverð til bænda hækkar um 2,49 kr. á lítra mjólkur, úr 80,43 kr. í 82,92 kr. Þá hækkar vinnslu- og dreifingakostnaður mjólkur um 2,85 kr. Samanlögð hækkun heildsöluverðs er því 5,34 kr. á hvern lítra mjólkur.  

Hækkunin er til komin vegna kostnaðarhækkana á aðföngum og rekstri undanfarinna 15 mánaða, en mjólk og mjólkurafurðir voru hækkaðar síðast 1. júlí 2012.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta