Hoppa yfir valmynd
17. september 2013 Atvinnuvegaráðuneytið

Flutningsjöfnunarstyrkir – 170 milljónir króna

Flutningsjofnunarstyrkir
Flutningsjofnunarstyrkir

Greiddar hafa verið tæplega 170 milljónir króna í svo kallaðan flutningsjöfnunarstyrk á þessu ári. Markmiðið er að styðja framleiðsluiðnað og atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni með því að jafna kostnað framleiðenda við flutning á vörum sínum. Þetta á við þá sem eru með framleiðslu og lögheimili fjarri innanlandsmarkaði eða útflutningshöfn og búa af þeim sökum við skerta samkeppnisstöðu vegna hærri flutningskostnaðar en framleiðendur sem eru nær markaðinum.

Opnað var fyrir rafrænar umsóknir í mars en umsóknarfrestur er til 31. mars ár hvert fyrir síðastliðið almanaksár. Á þessu ári bárust umsóknir frá 63 aðilum vegna kostnaðar við flutning á árinu 2012. Samþykktar umsóknir voru 58 en 8 var synjað.

Fyrirtæki á Norðurland eystra fengu mest í sinn hlut, eða rétt tæplega 100 milljónir króna. Vestfirðir komu þar næst með tæplega 40 milljónir og Norðurland vestra með rúmlega 20 milljónir (sjá mynd). Fyrirtæki á Suðurnesjum fengu minnst, eða 243 þúsund krónur.

Byggðastofnun hóf vinnu í janúar við umsóknarferil flutningsjöfnunarstyrkja samkvæmt lögum nr. 160/2011 um svæðisbundna flutningsjöfnun. Er þetta í fyrsta skiptið sem slíkir styrkir eru veittir á Íslandi og var því undirbúningur og kynning á umsóknaferlinu mikill. Byggðastofnun hafði umsjón með móttöku og yfirferð umsókna.

Flutningsjofnunarstyrkir




Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á hjalp@utn.is

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta