Hoppa yfir valmynd
22. október 2013 Matvælaráðuneytið

Stefnt að því að leggja fram frumvarp um náttúrupassa í byrjun næsta árs

ferdamenn
ferdamenn
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, kynnti á ríkisstjórnarfundi í morgun áform um að setja á fót samráðshóp helstu hagsmunaaðila til að útfæra nánar hugmyndir um svokallaðan náttúrupassa eða ferðakort. Gert er ráð fyrir að vinnu við útfærslu ljúki í lok árs og að frumvarp verði lagt fram á Alþingi í byrjun næsta árs.

Erlendum ferðamönnum hefur fjölgað umtalsvert á síðustu árum. Í nýlegum rannsóknum er gert ráð fyrir áframhaldandi vexti og að fjöldi erlendra ferðamanna fari yfir milljón á árinu 2020. Ljóst er að þessi mikla aukning ferðamanna kallar á verulegt átak í uppbyggingu innviða til að koma í veg fyrir tjón og skemmdir á íslenskri náttúru. Sé þessi innviðauppbygging tekin föstum tökum núna má gera ráð fyrir að hægt sé að auka verulega þolmörk íslenskra ferðamannastaða og renna nauðsynlegum stoðum undir það að ferðaþjónustan geti haldið áfram að vaxa og dafna.

Hagsmunaaðilar og ráðgjafar hafa sett fram hugmyndir að hinum ýmsu leiðum til að afla fjármagns til uppbyggingar ferðamannastaða en skiptar skoðanir eru á því hvernig best sé að standa að því. Undanfarnar vikur hefur verið í gangi vinna við að kortleggja þær hugmyndir sem settar hafa verið fram um hvernig best sé að haga fjármögnun og útdeilingu fjár til ferðamannastaða til uppbyggingar. Eftir þá yfirferð er það niðurstaðan að skynsamlegast sé að vinna að frekari útfærslu á svokölluðum náttúrupassa eða ferðakorti. Það sé sú hugmynd sem líklegust er til að njóta sem breiðastrar samstöðu meðal hagsmunaaðila enda mismunar hún ekki ólíkum rekstraraðilum innan ferðaþjónustunnar.

Megin hugmyndin að baki ferðakorti er að þeir greiði sem njóti þ.e. að þeir greiði sem raunverulega heimsækja þá ferðamannastaði sem kortið tekur til og stuðli að vernd. Hugmyndir um ferðakort eða náttúrupassa hafa verið í umræðunni í nokkurn tíma en fullmótaðar hugmyndir að útfærslu liggja ekki fyrir. Ýtarlegustu tillögurnar að slíku korti er að finna í skýrslum Boston Consulting Group og ferðaþjónustuklasans ásamt því að samráðsvettvangur um aukna hagsæld leggur til að sett verði á fót ferðakort til að standa undir kostnaði við uppbyggingu á ferðamannastöðum. Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) hafa ályktað um að þau telji að fara eigi þessa leið til uppbyggingar ferðamannastaða og sömu niðurstöðu er að finna í ályktun Ferðamálaráðs.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum