Hoppa yfir valmynd
8. nóvember 2013 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Viðurkenning á degi gegn einelti 2013

Þorláki Helgasyni framkvæmdastjóra Olweusarverkefnisins var veitt viðurkenning  fyrir ötult starf í baráttunni gegn einelti í skólum.
Þorláki Helgasyni framkvæmdastjóra Olweusarverkefnisins var veitt viðurkenning  fyrir ötult starf í baráttunni gegn einelti í skólum
Þorláki Helgasyni framkvæmdastjóra Olweusarverkefnisins var veitt viðurkenning fyrir ötult starf í baráttunni gegn einelti í skólum

Í dag, 8. nóvember 2013, er árlegur baráttudagur gegn einelti. Í tilefni dagsins hefur verkefnastjórn um aðgerðir gegn einelti ákveðið að veita Þorláki Helgasyni framkvæmdastjóra Olweusarverkefnisins gegn einelti viðurkenningu  fyrir ötult starf í baráttunni gegn einelti í skólasamfélaginu.

Viðurkenning fyrir starf gegn einelti var veitt í fyrsta skipti í fyrra þegar kvennalandsliðið í knattspyrnu fékk hana fyrir skilaboð gegn einelti og mikilvægi þess að fagna fjölbreytileikanum.

Olweusaráætlunin gegn einelti hefur verið virk á Íslandi í rúman áratug
eða frá árinu 2002. Hún teygir sig inn í allt skólasamfélagið, hefur í mörgum skólum gjörbreytt vinnulagi og lagt drjúgan skerf til skólaþróunar í landinu.  Yfir  80 skólar hafa verið hluti af áætluninni  og samtals yfir 100 þúsund nemendur hafa tekið þátt í könnunum sem lagðar eru fyrir í skólunum á hverju ári. Um 80 verkefnastjórar hafa verið menntaðir til að verða faglegir leiðbeinendur í skólunum, styðja við innleiðingu Olweusaráætlunarinnar og til að halda kerfinu við. Mikilvæg þekking, reynsla og hæfni hefur orðið til í skólasamfélaginu með verkefninu. Reynsla kennara og annarra starfsmanna hefur einnig færst milli skóla sem ekki teljast sérstaklega Olweusarskólar.

Þorlákur Helgason hefur verið umsjónarmaður Olweusaráætlunarinnar hér á landi frá upphafi og sat áður í starfshópi á vegum menntamálaráðuneytisins um mótun aðgerða gegn einelti í skólum. Verkefnið var í fyrstu rekið sem tilraunaverkefni í samstarfi ýmissa aðila en undanfarin ár hefur Þorlákur verið sjálfstæður framkvæmdastjóri Olweusarverkefnisins og hefur notið stuðnings stjórnvalda og annarra aðila til að halda verkefninu gangandi. Sem umsjónarmaður Olweusaráætlunarinnar hefur hann tengst ýmsum þáttum
skólastarfs, ekki síst þeim sem beint eða óbeint varða velferð nemenda og
allra aðila í skólasamfélaginu. Hann hefur miðlað þekkingu og reynslu vítt og breitt innanlands og veitir þátttökuskólunum stuðning við innleiðingu og ráðgjöf um eineltismál og skólabrag. Hann hefur sýnt mikla þrautseigju og úthald við að halda Olweusaráætluninni gangandi og unnið að ýmsum þróunarverkefnum til að bæta verkefnið enn frekar. Einnig sér hann um framkvæmd árlegrar könnunar á umfangi eineltis í þátttökuskólunum og sér um kynningu á niðurstöðum og veitir ráðgjöf um úrbætur. Þorlákur hefur haft óbilandi trú á Olweusaráætluninni og lagt mikið á sig við að stuðla að útbreiðslu hennar, vexti og viðgangi. Í þeim skólum sem hafa unnið markvisst að innleiðingu áætlunarinnar hefur umtalsverður viðvarandi árangur náðst í því að draga úr einelti og bæta skólabrag og jafnframt mótast verklag þar sem brugðist er markvisst við einelti sem upp kemur.

Þorláki Helgasyni framkvæmdastjóra Olweusarverkefnisins var veitt viðurkenning fyrir ötult starf í baráttunni gegn einelti í skólum

Þorláki Helgasyni framkvæmdastjóra Olweusarverkefnisins var veitt viðurkenning  fyrir ötult starf
í baráttunni gegn einelti í skólum

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum