Hoppa yfir valmynd
15. nóvember 2013 Matvælaráðuneytið

Styrkir af safnliðum ráðuneyta 2014

Á fjárlögum ársins 2012 var fyrirkomulagi við úthlutun styrkja til félaga, samtaka og einstaklinga breytt hvað varðar aðkomu fjárlaganefndar Alþingis og úthlutun færð til ráðuneyta.  Ákvörðun um framlag til einstakra málaflokka fer þó eftir samþykki Alþingis í fjárlögum 2014.

Ráðuneytin munu einungis úthluta styrkjum til verkefna sem falla undir málefnasvið þeirra að svo miklu leyti sem þau falla ekki undir lögbundna sjóði eða samninga, svo sem menningarsamninga eða vaxtarsamninga. Því er mikilvægt að umsækjendur kynni sér vel hvaða ráðuneyti ber ábyrgð á þeim málaflokki sem verkefni umsækjanda um styrk fellur undir.  Verkefni eru einungis styrkhæf í einu ráðuneyti og áskilja ráðuneyti sér rétt til að færa umsóknir á milli ráðuneyta falli verkefni betur að málaflokki í öðru ráðuneyti.

Mat á umsóknum

Starfshópur metur styrkhæfi umsókna og gildi þeirra fyrir verkefnasvið ráðuneytis almennt. Mat á umsóknum skal einkum byggjast á eftirtöldum sjónarmiðum eftir því sem við á:

a) gildi og mikilvægi verkefnis fyrir starfsemi viðkomandi málaflokks,

b) gildi og mikilvægi fyrir kynningu og markaðssetningu viðkomandi málaflokks,

c) að umsækjanda takist að ná þeim markmiðum sem verkefnið miðar að,

d) starfsferli og faglegum bakgrunni umsækjanda og annarra þátttakenda,

e) fjárhagsgrundvelli verkefnis og/eða hvort umsækjandi hafi hlotið aðra styrki til sama verkefnis.

Hafi umsækjandi áður fengið styrk til verkefnis þarf að liggja fyrir greinargerð um framkvæmd fyrra verkefnis og ráðstöfun styrkfjárins til að ný umsókn komi til greina eða eins og kveðið er á um í samkomulagi vegna fyrri styrkveitinga.

  • Við mat á umsóknum er starfshópnum heimilt að leita umsagnar fagaðila, gerist þess þörf.
  • Ákvörðun um úthlutun mun liggja fyrir eigi síðar en 31. janúar 2014.
  • Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á umsóknavef Stjórnarráðsins
  • Aðgangur er veittur á kennitölu umsækjanda. Hægt er að skrá sig inn með lykilorði, Íslykli eða rafrænum skilríkjum.
  • Lykilorðinu má breyta eftir innskráningu með því að opna Mínar stillingar. Umsækjendur skrá sig inn með kennitölu og lykilorði og velja atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti undir flipanum Umsóknir.

Nánari upplýsingar veitir Hulda Lilliendahl í síma 545-9700 eða í tölvupósti á [email protected]

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti styrkir verkefni sem falla undir eftirfarandi flokka:

Stuðningur við áhugahópa og faglegt starf:
Veittir eru styrkir til að styðja við aðila utan ríkisstofnana sem starfa á verkefnasviði atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis og njóta ekki framlaga á fjárlögum.

Umsóknarfrestur rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 4. desember 2013. Ekki er tekið við umsóknum eftir þann tíma.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum