„Við höfum gengið til góðs“

Um þessar mundir eru tíu ár liðin frá því að Olweusar verkefnið gegn einelti hófst hér á landi. Framkvæmdastjóri Olweusar verkefnisins er Þorlákur H. Helgason og hann hlaut nýlega sérstaka viðurkenningu á degi gegn einelti fyrir framlag sitt til þessara mála.
Í ávarpi sínu vék mennta- og menningarmálaráðherra að alvarlegum afleiðingum eineltis fyrir þann sem fyrir því verður og byggði m.a. á reynslu úr sínu nánasta umhverfi. Hann þakkaði þeim sem vinna af einurð gegn þessu samfélagsmeini fyrir mikilvægt framlag þeirra.
Á heimasíðu Olweusar verkefnisins segir m.a. um verkefnið:
Olweusaráætlunin gegn einelti hvílir á fremur fáum lykilmeginreglum sem fengist hafa staðfestar í vísindalegum rannsóknum á þróun og breytingum þessa atferlisvanda, einkum árásarhneigðu atferli. Það er því mikilvægt að reyna að koma á „endurskipulagningu þess félagslega umhverfis sem er“ og að skapa skólaumhverfi (og helst líka umhverfi heima fyrir) sem einkennist af:
- Hlýlegum og jákvæðum áhuga og alúð hinna fullorðnu.
- Ákveðnum römmum vegna óviðunandi atferlis.
- Stefnufastri beitingu neikvæðra afleiðinga (refsinga), sem hvorki eru líkamlegar né óvinveittar, brjóti nemandi gegn þeim reglum sem ákveðnar hafa verið.
- Fullorðnum í skóla (og á heimili) sem virka sem yfirboðarar við vissar aðstæður.