Hoppa yfir valmynd
27. nóvember 2013 Matvælaráðuneytið

Tundurþráðum beitt við síldarfælingar í Kolgrafafirði

Frá fundinum á Eyri í Kolgrafafirði í dag.
Frá fundinum á Eyri í Kolgrafafirði í dag.

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur tekið yfir samhæfingu aðgerða vegna síldarinnar sem nú er í Kolgrafafirði. Ákveðið hefur verið að ráðast í fælingaraðgerðir með tundurþráðum í firðinum í því skyni að hrekja síldina sem þar er nú út úr firðinum. Landhelgisgæslan mun sjá um framkvæmd þeirra aðgerða, sem gert er ráð fyrir að fari fram á morgun, fimmtudaginn 28. nóvember.

Aðgerðirnar voru ræddar í samhæfingarstöð almannavarna í Skógarhlíð í morgun á fundi með fulltrúum almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, umhverfis- og auðlindaráðuneytis, atvinnu- og nýsköpunarráðuneytis, Hafrannsóknarstofnunar, Umhverfisstofnunar, Vegagerðarinnar, Landhelgisgæslunnar, Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Sýslumanns Snæfellinga, Stykkishólmi. Þá voru aðgerðirnar kynntar og ræddar á fundi með heimamönnum í Kolgrafafirði nú í eftirmiðdag.

Smölun síldar með djúpsprengjum er þekkt aðferð sem áður var notuð með góðum árangri við nótaveiðar en er nú víðast hvar bönnuð sem veiðiaðferð. Eru því nokkrar vonir bundnar við að hægt sé að hrekja síldina út úr firðinum með þessum hætti.

Varðskipið Þór mun í dag leggja af stað áleiðis til Kolgrafafjarðar vegna aðgerðanna og munu bátar á vegum Landhelgisgæslunnar koma smásprengjunum fyrir í firðinum á morgun.

Vegna aðgerðanna verður Kolgrafafjörður lokaður á morgun  fyrir bátaumferð og veiði og vegurinn innan fjarðar verður sömuleiðis lokaður almennri umferð. Eftir sem áður verður opið fyrir umferð um brúna sjálfa, en ekki verður heimilt að stöðva ökutæki á brúnni.

Fylgst verður grannt með árangri aðgerðanna, magni síldar og súrefnisstöðu fjarðarins í því skyni að geta gripið til aðgerða á ný með skömmum fyrirvara þegar og ef þurfa þykir.

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum