Hoppa yfir valmynd
3. desember 2013 Utanríkisráðuneytið

Evrópusambandið stöðvar IPA-verkefni á Íslandi

Skrifstofa stækkunarmála framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (ESB) hefur einhliða og án fyrirvara tilkynnt ákvörðun um að hætta öllum IPA-verkefnum sem hafin voru á Íslandi. Framkvæmdastjórnin mun segja samningum upp með tveggja mánaða fyrirvara og verða bréf þess efnis send á næstu dögum.

Í erindi sínu til íslenskra stjórnvalda vísar framkvæmdastjórnin til þess að IPA aðstoð við Ísland hafi verið ætlað að styðja við verkefni sem ráðast þyrfti í vegna áforma um aðild að ESB. Í ljósi breyttrar stefnu stjórnvalda, telji hún ekki vera forsendur fyrir frekari styrkveitingum. Ríkisstjórnin hefur frá upphafi lýst vilja til þess að þau verkefni sem hafin eru verði leidd til lykta samkvæmt gerðum samningum. Um það virtist ríkja samstaða.

Í samræmi við niðurstöðu fundar stækkunarstjóra ESB og utanríkisráðherra í júní s.l. hafa fulltrúar framkvæmdastjórnarinnar og stjórnvalda í sumar og haust farið ofan í saumana á hverju verkefni fyrir  sig. Fyrir liggur að styrkþegar hafa í öllum tilvikum staðið við gerða samninga og að mati eftirlitsmanna framkvæmdastjórnarinnar uppfyllt kröfur um framvindu verkefnanna.

Ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar kemur Íslendingum í opna skjöldu, sérstaklega þegar til þess er litið að framkvæmdastjórnin hefur á fyrri stigum ítrekað gefið til kynna að öllum IPA verkefnum sem hafin væru yrði lokið án tillits til mögulegrar aðildar. Íslenskir og erlendir samstarfsaðilar hafa því haldið áfram að vinna að verkefnum í góðri trú um að ESB myndi standa við fyrri ákvarðanir og yfirlýsingar.

Utanríkisráðuneytið hefur komið óánægju íslenskra stjórnvalda með ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar á framfæri og telur utanríkisráðherra að með henni bregðist ESB þeim fjölmörgu samstarfsaðilum sem það hefur gert samninga við.

Í ljósi þess að íslensk stjórnvöld hafa lagt áherslu á gott samstarf við ESB er þessi ákvörðun  framkvæmdastjórnarinnar mjög óheppileg og ekki til þess fallin að styrkja samband aðila.   

Helstu verkefnin sem um ræðir eru:  

  • Verkefni á vegum Náttúrufræðistofnunar og Landmælinga Íslands um uppbyggingu á   NATURA 2000 samstarfsneti á Íslandi og innleiðing vistgerða- og fuglatilskipana           ESB,
  • verkefnið Katla jarðvangur á vegum Háskólafélags Suðurlands,
  • verkefni á vegum Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins sem felst í víðtækum aðgerðum til að efla menntunarstig og atvinnu,
  • verkefni á vegum Hagstofunnar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum