Hoppa yfir valmynd
13. desember 2013 Matvælaráðuneytið

Reglugerð um hvalveiðar

Hvalveiðar í samræmi við ráðgjöf

Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur ákveðið, í samráði við ríkisstjórnina, heimild til hvalveiða á árunum 2014-2018. Heimildin miðast við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar hverju sinni næstu fimm árin. Í ráðgjöfinni fyrir næsta ár kemur fram að veiðar á 229 hrefnum á landgrunnssvæðinu og 154 langreyðum samrýmast markmiðum um sjálfbæra nýtingu. Ákvörðunin er í samræmi við stefnu stjórnvalda um sjálfbæra nýtingu lifandi auðlinda hafsins og með hliðsjón af ályktun Alþingis um hvalveiðar frá 10. mars 1999.

 

Innan við 1% af stofnstærð 

Niðurstöður hvalatalninga sýna að um það bil 20.000 langreyðar og að minnsta kosti 30.000 hrefnur er að finna á stofnsvæðunum við Austur-Grænland og Ísland. Það aflamark sem mælt er með er minna en 1% af stofnstærð beggja tegunda, og vel innan þeirra marka sem almennt er miðað við að tryggi sjálfbærar veiðar úr hvalastofnum. Einnig ber að hafa í huga að hvorug þeirra hvalategunda sem Íslendingar nýta, er á válista Alþjóðlegu náttúruverndar-samtakanna (IUCN).

 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um stefnu íslenskra stjórnvalda í hvalaveiðum má finna á eftirfarandi vefslóð: http://www.atvinnuvegaraduneyti.is/sjavarutvegs-og-landbunadarmal/verkefni/malaflokkar/hvalveidar/yfirlysing/


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum