Hoppa yfir valmynd
19. desember 2013 Matvælaráðuneytið

14. fundur samstarfsnefndar Íslands og Rússlands um sjávarútvegsmál


Fjórtándi fundur samstarfsnefndar Íslands og Rússlands um tiltekna þætti í samstarfi á sviði sjávarútvegsmála var haldinn í Moskvu dagana 16.-17. desember 2013. Á fundinum voru rædd þau mál sem helst eru á döfinni varðandi samstarf landanna á vettvangi sjávarútvegsmála.

Á fundinum skiptust fulltrúar landanna á upplýsingum um framkvæmd samningsins frá 15. maí 1999 milli ríkisstjórna Íslands, Noregs og Rússlands um tiltekna þætti í samstarfi á sviði sjávarútvegs (Smugusamningur). Þannig var fjallað um samstarf á sviði veiðieftirlits, hafrannsókna og veiðistjórnunar sameiginlegra stofna á Norður-Atlantshafi, m.a. úthafskarfa, kolmunna, norsk-íslenskrar síldar og makríls.

Þá var m.a. rætt um mikilvægi þess að Rússar verði aðilar að samkomulagi um stjórnun úthafskarfaveiða á Reykjaneshrygg. Af hálfu Íslands var lögð áhersla á að veiðistjórnun karfastofnanna á Reykjaneshrygg byggi á bestu vísindalegu þekkingu og ráðgjöf sem fyrir liggur. Ákveðið var að tillögu Rússa að stefna að sérstökum fundi íslenskra og rússneskra vísindamanna á næsta ári til að efla vísindasamstarf ríkjanna um úthafskarfa og fleiri sameiginlega stofna.

Samningar um veiðar íslenskra skipa 2014 náðust og  koma alls 9.076 tonn af þorski í rússneskri lögsögu í hlut Íslands á grundvelli samnings ríkjanna tveggja en þar af eru 5.672 tonn sem úrhlutað er beint. Meðaflaheimild í ýsu vegna þess magns verður 8% eða sem nemur 450 tonnum. Meðaflaheimild í öðrum tegundum er líkt og áður 30% aflaheimilda í þorski að frádreginni ýsu.

Eftir er að semja um verð og meðaflaheimildir  vegna 3.404 tonna sem íslenskar útgerðir hafa rétt til að kaupa af Rússum.

Einnig ræddu ríkin um frekara samstarf á sviði sjávarútvegsmála á fjölþjóðlegum vettvangi þar sem áherslur og hagsmunir ríkjanna tveggja fara iðulega saman. Að loknum fundinum lýstu báðir aðilar yfir ánægju með viðræðurnar og mikilvægi þeirra í tvíhliða samskiptum ríkjanna.

Sandinefnd Íslands var skipuð Jóhanni Guðmundssyni skrifstofustjóra sem var formaður hennar ásamt Steinari Inga Matthíassyni fulltrúa atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins í Brussel, Önnu Þormar frá Fiskistofu og Kolbeini Árnasyni framkvæmdastjóra LÍÚ.


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum