Hoppa yfir valmynd
19. desember 2013 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum fyrir tímabilið janúar – júní 2014

Fimmtudaginn 12. desember 2013, rann út tilboðsfrestur í tollkvóta á blómum vegna fyrri hluta ársins 2014.

 

Þrjú tilboð bárust um innflutning á blómstrandi pottaplöntum á vörulið (0602.9091) samtals 4.500 stk. á meðalverðinu 110 kr./stk. Hæsta boð var 135 kr./stk. en lægsta boð var 91 kr./stk. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 2.200 stk. á meðalverðinu 120 kr./stk.

 

Þrjú tilboð bárust um innflutning á öðrum pottaplöntum, (0602.9093) samtals 5.800 stk. á meðalverðinu 109 kr./stk.  Hæsta boð var 135 kr./stk. en lægsta boð var 93 kr./stk.  Tilboðum var tekið frá þremur fyrirtækjum um innflutning á 3.000 stk. á meðalverðinu 117 kr./stk.

 

Tvö tilboð bárust um innflutning á rósum (0603.1100) samtals 4.000 stk., á meðalverðinu 48 kr./stk.  Hæsta boð var 55 kr./stk. en lægsta boð var 40 kr./stk. Tilboðum var tekið frá einu fyrirtæki um innflutning á 2.000 stk. á meðalverðinu 55 kr./stk.

 

Eitt tilboð barst um innflutning á tryggðablómum (0603.1400) samtals 9.000 stk., á meðalverðinu 10 kr./stk.  Tilboðum var tekið frá einu fyrirtæki um innflutning á 9.000 stk. á meðalverðinu 10 kr./stk.

 

Þrjár umsóknir bárust um innflutning á afskornum blómum, (0603.1909) samtals 106.000 stk. og náðu umsóknir ekki tilteknum stykkjafjölda sem í boði var eða 166.250 stk. Úthlutað var án útboðs.

 

Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur atvinnuvega- og  nýsköpunararráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða/umsókna þeirra:

 

Blómstrandi pottaplöntur janúar - júní 2014

 

Magn (stk) Tilboðsgjafi
   1.400 Húsasmiðjan / Blómaval
      800 Gróðurvörur ehf

 

Aðrar pottaplöntur janúar – júní 2014

 

Magn (stk) Tilboðsgjafi
1.900 Húsasmiðjan / Blómaval
  800  Gróðurvörur ehf
  300 Grænn markaður ehf

 

Rósir janúar – júní 2014

 

Magn (stk) Tilboðsgjafi
2.000 Grænn Markaður ehf

 

Tryggðablóm janúar – júní 2014

 

Magn (stk) Tilboðsgjafi
          9.000 Samasem ehf

 

(Annars)  afskorin blóm janúar – júní 2014

 

Magn (stk) Tilboðsgjafi
 6.000 Gróðurvörur ehf
50.000 Grænn markaður ehf
50.000 Samasem ehf

 

Reykjavík, 19. desember 2013  

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum