Hoppa yfir valmynd
21. febrúar 2014 Atvinnuvegaráðuneytið

Kaka ársins 2014 frumsmökkuð á skrifstofu Ragnheiðar Elínar 

Ragnheiður Elín og Íris Björk Óskarsdóttir
Ragnheiður Elín og Íris Björk Óskarsdóttir
Það var mikil gleði á skrifstofu Ragnheiðar Elínar Árnadóttur  iðnaðar- og viðskiptaráðherra þegar Íris Björk Óskarsdóttir hjá Sveinsbakaríi kom færandi hendi með Köku ársins 2014. Og að sjálfsögðu var öllum konum í ráðuneytinu boðið í kökuveislu í tilefni af konudeginum næstkomandi sunnudag. 

Höfundur Köku ársins 2014 er Íris Björk Óskarsdóttir en hún er nemi hjá Sveinsbakaríi og það er óhætt að fullyrða að hún eigi framtíðina fyrir sér. Kakan er hreint út sagt hreinasta lostæti og bar ráðherra mikið lof á hana og bætti því við að hún væri lýsandi dæmi um þá fagmennsku, drifkraft og framsækni sem einkenndi íslenskan iðnað.

Alls bárust 20 kökur í keppnina í ár. Sigurkakan er karamellusúkkulaðiterta með anís og rauðum ópal. Hún er lagskipt, m.a. samsett úr browniesbotni, púðursykurmarengs og karamellusúkkulaðimousse. Kakan er hjúpuð með dökkum súkkulaðihjúp með keim af rauðum ópal. 

Kaka ársins 2014

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta