Hoppa yfir valmynd
27. mars 2014 Atvinnuvegaráðuneytið

Gleðilegan HönnunarMars!

HönnunarMars
HönnunarMars

HönnunarMars fer fram í sjötta sinn, dagana 27. – 30. mars 2014. Íslenskir hönnuðir og arkitektar bera hitann og þungann af dagskrá hátíðarinnar sem spannar langa helgi og býður til ótal viðburða, innsetninga og sýninga. Á HönnunarMars er hönnun kynnt sem atvinnugrein sem byggir á traustum grunni og gegnir veigamiklu hlutverki í samtímanum. 

Dagskrá

Líkt og undanfarin ár hefst HönnunarMars með fyrirlestradegi þar sem framúrskarandi hönnuðir og arkitektar veita innblástur með þekkingu sinni og reynslu. Fyrirlestradagurinn verður haldinn fimmtudaginn 27. mars.

Kaupstefnumótið DesignMatch verður haldið föstudaginn 28. mars í Norræna húsinu þar sem íslenskum hönnuðum gefst tækifæri á að hitta alþjóðlega kaupendur.

Frá opnun hátíðarinnar á fimmtudeginum fram á sunnudag eru sýningar hönnuða og arkitekta opnar um alla borg. Á HönnunarMars býðst tækifæri til að auðga andann og sækja innblástur í hina taumlausu sköpunargleði sem ríkir innan hönnunarsamfélagsins.


HM

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta