Hoppa yfir valmynd
2. apríl 2014 Atvinnuvegaráðuneytið

Enginn grundvöllur fyrir áframhaldandi aðgerðum Bandaríkjanna vegna hvalveiða Íslendinga

Íslendingar standa fast á rétti sínum til sjálfbærra og löglegra hvalveiða.

Innanríkisráðherra Bandaríkjanna útnefndi Ísland samkvæmt svonefndu Pelly-ákvæði í febrúar sl. og lagði til við Bandaríkjaforseta að gripið yrði til diplómatískra aðgerða gegn Íslandi vegna hvalveiða. Forsetinn ákvað að fara að tillögu innanríkisráðherrans en tilkynnti jafnframt að ekki yrði gripið til neinna viðskiptalegra aðgerða. Það var heldur ekki gert árið 2011 þegar forsetinn staðfesti sams konar aðgerðir af sömu ástæðum og nú.

Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra: „Það eru vonbrigði að bandarísk stjórnvöld grípi til þessa ráðstafanna gagnvart Íslandi, en þó rétt að halda til haga að þetta eru ekki hörð viðbrögð og lík þeim sem við fengum 2011. Við ítrekum að veiðarnar eru löglegar samkvæmt alþjóðasamningum. Vísindagrundvöllur þeirra er traustur og það er hafið yfir allan vafa að veiðarnar eru sjálfbærar og alþjóðaviðskipti okkar með hvalaafurðir í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar.“

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta