244 milljónum úthlutað úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða
Tilkynnt hefur verið um úthlutun úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrir árið 2014. Að þessu sinni fengu 50 verkefni styrk fyrir samtals rúmar 244 milljónir króna til hönnunar og framkvæmda á ferðamannastöðum.
Hæsti styrkur til framkvæmda í Skaftafelli
Sem fyrr eru verkefnin fjölbreytt og dreifast víða um land. Hæsta styrkinn hlýtur Vatnajökulsþjóðgarður, 29,7 milljónir króna, vegna framkvæmda í Skaftafelli. Þar verður m.a. byggt við núverandi aðstöðu en framkvæmdirnar hafa að markmiði að stótbæta þjónustu við ferðafólk.
Sjö önnur verkefni fá 10 milljóna króna styrk eða hærri:
- Þingeyjarsveit vegna endurbóta við Goðafoss, 15 milljónir kr
- Umhverfisstofnun fyrir salernisaðstöðu við Hverfjall í Mývatnssveit 13,8 milljónir kr
- Vatnajökulsþjóðgarður vegna uppbyggingar við Langasjó 13,3 milljónir kr
- Djúpavogshreppur vegna deiliskipulags o.fl. við Teigarhorn 11,6 milljónir kr
- Umhverfisstofnun vegna framkvæmda við nýjan stiga við Gullfoss 10,1 milljón kr
- Skaftárhreppur vegna áningarstaðar í Eldhrauni 10 milljónir kr
- Minjastofnun Íslands vegna uppbyggingar á Stöng í Þjórsárdal 10 milljónir kr
Sótt um fyrir 848 milljónir
Umsóknarfrestur um styrki rann út í lok janúar og bárust alls 136 umsóknir frá opinberum- og einkaaðilum sem hafa umsjón með ferðamannastöðum víðsvegar um land. Heildarupphæð styrksumsókna var voru rúmar 848 milljónir króna en heildarkostnaður við verkefnin er áætlaður 1,9 milljarðar króna.