Aðgangsviðmið háskóla
Aðgangsviðmið eru leiðarljós við skipulagningu náms og nýtast t.d. nemendum við undirbúning undir háskólanám í einstökum háskóladeildum
Aðgangsviðmið háskóla eru leiðarljós um hæfni nemenda sem hefja nám á grunnstigi (fyrsta háskólaþrepi) í einstökum háskóladeildum. Í samningum ráðuneytisins við íslenska háskóla er kveðið á um að þeir muni í síðasta lagi skólaárið 2014/2015 birta aðgangsviðmið allra námsleiða sinna.
Aðgangsviðmiðin skulu:
- vísa í þrepaskipt hæfniviðmið skv. aðalnámskrá framhaldsskóla,
- tiltaka þá hæfni sem gagnleg er fyrir nemanda þegar hann hefur nám á háskólastigi,
- styðja við kröfur sem gerðar eru á inntökuprófum þar sem þau eru notuð,
- vera skýr og auðskiljanleg fyrir framhaldsskólanemendur,
- vera aðgengileg á heimasíðum háskóla.
Aðgangsviðmiðum er ætlað að vera leiðarljós við skipulagningu náms og eiga að:
- nýtast sem skýr skilaboð til nemenda um hvernig þeir undirbúi sig best undir háskólanám,
- nýtast framhaldsskólum við skipulag stúdentsprófs,
- vera leiðbeinandi við styttingu náms til stúdentsprófs,
- draga úr skilum milli skólastiga.
Með þessu móti stuðla aðgangsviðmið að markvissu námsvali til undirbúnings fyrir tiltekið háskólanám. Háskólarnir gera skýran greinarmun á aðgangskröfum/inntökuskilyrðum í einstaka námsbrautir og aðgangsviðmiðunum, sem eru einkum leiðbeinandi viðmið. Einnig er áhersla lögð á að aðgangsviðmið séu í takt við kröfur sem fram koma í inntökuprófum eða vinnumöppum, þar sem það á við. Viðmiðin eru undirrituð af fulltrúum deilda og rektor viðkomandi skóla.

Kynning á aðgangsviðmiðum (power point)
Aðgangsviðmiðin eru birt á heimasíðum háskólanna: