Hoppa yfir valmynd
21. maí 2014 Atvinnuvegaráðuneytið

Frumvarp til laga um vernd afurðaheita sem vísa til uppruna, landsvæðis eða hefðbundinnar sérstöðu. Umsagnarfrestur er til 20. júní.

Frumvarp til laga um vernd afurðaheita sem vísa til uppruna, landsvæðis eða hefðbundinnar sérstöðu hefur verið til vinnslu hjá ráðuneytinu. Frumvarp þetta er nú birt í annað sinn á heimasíðu ráðuneytisins en drög þess voru áður birt 11. júlí 2013. Frumvarpið hefur tekið nokkrum breytingum frá því það var birt, en ráðuneytið hefur m.a. breytt frumvarpinu með hliðsjón af athugasemdum sem fram komu við vinnslu þess. Frumvarpinu hefur verið dreift á Alþingi sjá þingskjal 1062 – 589. mál. Ráðuneytið óskar að nýju eftir umsögnum um frumvarpið og athugasemdir þess.

Tilgangur frumvarpsins er að vernda afurðaheiti sem vísa til uppruna, landsvæðis eða hefðbundinnar sérstöðu, með það að markmiði að stuðla að neytendavernd, auka virði afurða og koma í veg fyrir óréttmæta viðskiptahætti. Frumvarpið er byggt á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1151/2012 frá 21. nóvember 2012 um gæðakerfi fyrir landbúnaðarafurðir og matvæli. Einnig var tekið mið af innleiðingu reglnanna í Noregi og Danmörku. Frumvarpið nær yfir heiti matvæla, vína og sterkra vína og annarra vara.

Frestur til að skila umsögn um frumvarpið og athugasemdir þess er til 20. júní 2014 í tölvupóstfangið [email protected] eða bréflega til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, Skúlagötu 4, 150 Reykjavík.

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta