Innflutningur á nautakjöti, opinn tollkvóti
Vegna umræðu um innflutning á nautakjöti vill atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið taka fram að tollkvóti vegna innflutnings á nautakjöti hefur verið opinn síðan 28. febrúar 2014. Það þýðir að innflytjendur geta flutt inn nautakjöt gegn greiðslu á ákveðnum tolli, sem er 45% af þeim magntolli sem leggjast myndi á kjötið ef tollkvótinn væri ekki opinn. Auk þess legðist þá á 30% verðtollur.
Sem dæmi má nefna að tollur á hakkefni er 270 krónur sem er 45% af leyfilegum magntolli. Væri tollkvótinn ekki opinn myndi tollurinn verða 30% af innflutningsverði auk 599 króna. Þegar tollkvóti er opinn, eins og núna, hefur verðhækkun á innlendu nautakjöti engin áhrif á innflutningsverðið.
Reglugerð um úthlutun á opnum tollkvótum á nautakjöti