Hoppa yfir valmynd
12. júní 2014 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum fyrir tímabilið júlí – desember 2014

Miðvikudaginn 4. júní 2014 rann út tilboðsfrestur í tollkvóta á blómum vegna seinni hluta ársins 2014.

Tvö tilboð bárust um innflutning á blómstrandi pottaplöntum á vörulið (0602.9091) samtals 2.350 stk. á meðalverðinu 113 kr./stk. Hæsta boð var 130 kr./stk. en lægsta boð var 103 kr./stk. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 1.650 stk. á meðalverðinu 116 kr./stk.

Tvö tilboð bárust um innflutning á öðrum pottaplöntum, (0602.9093) samtals 2.910 stk. á meðalverðinu 112 kr./stk.  Hæsta boð var 130 kr./stk. en lægsta boð var 103 kr./stk.  Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 2.160 stk. á meðalverðinu 115 kr./stk.

Eitt tilboð barst um innflutning á tryggðablómum (0603.1400) samtals 6.500 stk., á meðalverðinu 11 kr./stk.  Tilboðum var tekið frá einu fyrirtæki um innflutning á 6.500 stk. á meðalverðinu 11 kr./stk.

Þrjár umsóknir bárust um innflutning á afskornum blómum, (0603.1909) samtals 78.000 stk. og náðu umsóknir ekki tilteknum stykkjafjölda sem í boði var eða 166.250 stk. Úthlutað var án útboðs.

Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur atvinnuvega- og  nýsköpunararráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða/umsókna þeirra:

Blómstrandi pottaplöntur júlí - desember 2014

Magn (stk) Tilboðsgjafi
   900 Húsasmiðjan / Blómaval
   750 Gróðurvörur ehf

 

Aðrar pottaplöntur janúar – júní 2014

Magn (stk) Tilboðsgjafi
1.410 Húsasmiðjan / Blómaval
  750  Gróðurvörur ehf

 

Tryggðablóm janúar – júní 2014

Magn (stk) Tilboðsgjafi
                 6.500 Samasem ehf

 

(Annars)  afskorin blóm janúar – júní 2014

Magn (stk) Tilboðsgjafi
 6.000 Gróðurvörur ehf
22.000 Grænn markaður ehf
50.000 Samasem ehf

 

Reykjavík, 11. júní 2014.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum