Úthlutun aflaheimilda Íslands fyrir árið 2014 úr stofni Austur-Atlantshafs bláuggatúnfisks
Ísland hefur verið aðili að Atlantshafs túnfiskveiðiráðinu (ICCAT) frá árinu 2002. Veiðiheimildir í Austur-Atlantshafs bláuggatúnfiski sem koma í hlut Íslands og veiða má á línu frá 1. ágúst 2014, á svæðinu suður af Íslandi, nema 25 tonnum.
Útgerðir sem hafa áhuga á að nýta þessa heimild skulu sækja um til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins fyrir 30. júní 2014. Skilyrði er að veiðiskip sé að lágmarki 500 BT.
Í umsókninni skal koma fram nánari áætlun um veiðarnar, m.a. veiðiskip, aðstöðu til aflameðferðar s.s. kælingu eða frystingu afla um borð, löndunarhöfn sem og söluaðila og markaðsland. Við ákvörðun um úthlutun verður litið til allra þessara atriða.
Skilyrði fyrir veiðum er að eftirlitsmaður frá Fiskistofu sé um borð, skipið sé búið rafrænni afladagbók og hafi IMO númer. Ráðuneytið áskilur sér því rétt til að hafna umsóknum séu líkur til að viðkomandi skip sé að einhverju leiti óhentugt eða vanbúið til veiðanna með tilliti til öryggis eða búnaðar.