Flutningur stjórnsýsluverkefna landbúnaðarins
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur sett af stað vinnu við að færa stjórnsýsluverkefni landbúnaðaðarmála frá Bændasamtökum Íslands til ríkisins. Meginhluti verkefnanna flyst annars vegar til Matvælastofnunar og hins vegar til Framleiðnisjóðs landbúnaðarins. Nú sinna 6-7 manns í 5 stöðugildum þessum verkefnum – sumir í hlutastörfum.
Flutningurinn tekur mið af áliti Ríkisendurskoðunar varðandi útvistun opinberra stjórnsýsluverkefna landbúnaðarmála.