Hoppa yfir valmynd
22. október 2014 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Samstarfsverkefni um NPA verði framlengt

Alþingishúsið
Alþingishúsið

Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur ákveðið að leggja fyrir Alþingi frumvarp sem miðar að því að framlengja samstarfsverkefni um innleiðingu notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar (NPA) til ársloka 2016.

Frumvarpið, sem ráðherra stefnir að því að leggja fyrir Alþingi á næstu vikum, felur í sér frestun á gildistíma tiltekinna verkefna í bráðabirgðaákvæðum laga um málefni fatlaðs fólks. Þessi ákvörðun er tekin að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga, enda bera sveitarfélögin ábyrgð á þjónustu við fatlaða íbúa sína.

Samkvæmt frumvarpinu verður NPA-þjónusta áfram boðin til reynslu samkvæmt sérstökum samningum við sveitarfélögin. Unnt er að fjármagna þá samninga sem þegar hafa verið gerðir og stefnt er að því að sækja aukið fé til Alþingis við yfirstandandi fjárlagagerð svo unnt verði að gera fleiri samninga um þessa tegund þjónustu.

Gangi þessi áform eftir mun faglegt og fjárhagsleg mat á NPA-samstarfsverkefninu fara fram árin 2014–2015 og verða tilbúið í árslok 2016, en þá er jafnframt miðað við að endurskoðun laga um félagsþjónustu sveitarfélaga og laga um málefni fatlaðs fólks verði lokið.

Með þessari framlengingu NPA-verkefnisins gefst rýmri tími en ella til að meta allar hliðar NPA í ljósi reynslu. Tekið skal fram að ekki hefur verið fallið frá því að lögfesta NPA sem þjónustuúrræði við fatlað fólk.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum