Breyting á dagpeningum vegna ferðalaga ríkisstarfsmanna erlendis
Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið breytingu á dagpeningum til greiðslu gisti- og ferðakostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum erlendis á vegum ríkisins. Kostnaður vegna gistingar hækkar en sá hluti dagpeninga sem er ætlaður til greiðslu annars kostnaðar er óbreyttur frá fyrri auglýsingu.
Ákvörðunin tekur gildi 1. desember 2014.