Hoppa yfir valmynd
28. nóvember 2014 Matvælaráðuneytið

Náttúrupassa er ætlað að standa undir uppbyggingu ferðamannastaða og verndun íslenskrar náttúru

Skaftafell
Skaftafell
Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra lagði fram á ríkisstjórnarfundi þann 28. nóvember sl., frumvarp til laga um náttúrupassa. Markmið frumvarpsins er að afla nægjanlegs fjármagns til að stórauka nauðsynlega uppbyggingu, viðhald og verndun á ferðamannastöðum og efla um leið öryggismál ferðamanna.

Mikil fjölgun erlendra ferðamanna hefur í för með sér stóraukið álag á margar af helstu náttúruperlum landsins. Á síðasta ári komu hingað 870 þúsund erlendir ferðamenn og á þessu ári stefnir í að milljón gesta múrinn verði rofinn. Í könnunum kemur í ljós að 80% þessara erlendu ferðamanna nefna íslenska náttúru sem megin ástæðu komu sinnar.

Það liggur fyrir að víða hefur náttúran látið á sjá og uppbygging og viðhald á innviðum ferðamannastaða hefur ekki þróast í takt við fjölgun ferðamanna. Mikilvægt er að strax sé hafist handa við uppbyggingarstarfið og er áætlað að árleg fjárfestingaþörf nemi um einum milljarði króna.

Allir ferðamannastaðir í eigu eða umsjón opinberra aðila munu sjálfkrafa eiga aðild að náttúrupassa. Jafnframt geta einkaaðilar sótt um aðild að náttúrupassanum og er þeim þá óheimilt að rukka aukalega sérstakt aðgangsgjald.

Verð fyrir náttúrupassan verður 1.500 kr. og gildir hann í þrjú ár. Einstaklingar undir 18 ára aldri þurfa ekki að hafa náttúrupassa. Umsjón eftirlits með náttúrupassa verður í höndum Ferðamálastofu og fær hún heimildir til að sekta þá sem ekki hafa greitt gjald fyrir náttúrupassa.

Áætlaðar tekjur fyrstu þrjú árin af náttúrupassanum nema um 4,5-5,2 milljörðum króna og reiknað er með að ríflega 85% komi frá erlendum ferðamönnum. Framkvæmdasjóður ferðamannastaða hefur umsjón með útdeilingu fjármuna og er mælt fyrir um að 82,5% af tekjum sjóðsins verði varið til uppbyggingar og viðhalds ferðamannastaða sem eiga aðild að náttúrupassa og skal við þá úthlutun taka mið af verkefnaáætlun sem unnin er á grundvelli laga um landsáætlun um uppbyggingu innviða fyrir ferðamenn. 10% af tekjum sjóðsins skal varið til framkvæmda á ferðamannastöðum sem ekki eiga aðild að náttúrupassa gegn 50% mótframlagi eigenda. Um 7,5% eru eyrnamerkt málefnum sem tengjast öryggi ferðamanna. Að hámarki 3,5% skal varið í umsýslu náttúrpassans. 

Gert er ráð fyrir að Náttúrupassinn taki gildi 1. september 2015

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum