Hoppa yfir valmynd
15. desember 2014 Forsætisráðuneytið

Málþing um lýðheilsu

Haldið verður málþing í Safnahúsinu við Hverfisgötu þann 16. desember 2014, kl. 14:30–16:30 undir yfirskriftinni „Lýðheilsa – Heilsa í allar stefnur. Hvar standa Íslendingar í samanburði þjóða?“ Að málþinginu standa forsætisráðuneytið, Embætti landlæknis og velferðarráðuneytið.

Tveir erlendir gestafyrirlesarar flytja erindi á málþinginu, þau Timo Ståhl, sviðsstjóri Lýðheilsustofnunar Finnlands, og Tone Poulsen Torgersen, sérfræðingur hjá Heilbrigðismálastofnun Noregs (Helsedirektoratet). Þriðja erindið á málþinginu flytur Dóra Guðrún Guðmundsóttir, sviðsstjóri hjá Embætti landlæknis.

Að erindum loknum verða pallborðsumræður. Inga Dóra Sigfúsdóttir, prófessor og formaður lýðheilusnefndar, stýrir umræðunum.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra flytur ávarp í upphafi málþingsins, en málþingsstjóri er Anna Lilja Gunnarsdóttir ráðuneytisstjóri í velferðarráðuneytinu.

Málþingið er haldið í framhaldi af sérfræðingafundi sama daga um þetta málefni sem Embætti landlæknis gengst fyrir í samstarfi við velferðarráðuneytið í tengslum við formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum