Hoppa yfir valmynd
16. desember 2014 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum fyrir tímabilið janúar – júní 2015


Mánudaginn 24. nóvember 2014 rann út tilboðsfrestur í tollkvóta á blómum vegna fyrri hluta ársins 2015.

Tvær umsóknir bárust um innflutning á blómstrandi pottaplöntum á vörulið (0602.9091) samtals 2.100 stk. og náðu umsóknir ekki tilteknum stykkjafjölda sem í boði var eða 2.200 stk. Úthlutað án útboðs.

Tvær umsóknir bárust um innflutning á blómstrandi pottaplöntum á vörulið (0602.9093) samtals 2.500 stk. og náðu umsóknir ekki tilteknum stykkjafjölda sem í boði var eða 3.000 stk. Úthlutað var án útboðs.

Eitt tilboð barst um innflutning á rósum (0603.1100) samtals 2.000 stk., á meðalverðinu 40 kr./stk.  Hæsta boð var 40 kr./stk. en lægsta boð var 40 kr./stk. Tilboðum var tekið frá einu fyrirtæki um innflutning á 2.000 stk. á meðalverðinu 40 kr./stk. Úthlutað var án útboðs.

Eitt tilboð barst um innflutning á tryggðablómum (0603.1400) samtals 9.000 stk., á meðalverðinu 9 kr./stk.  Hæsta boð var 15 kr./stk. en lægsta boð var 1 kr./stk. Tilboði var tekið frá einu fyrirtæki um innflutning á 9.000 stk. á meðalverðinu 9 kr./stk.

Tvær umsóknir bárust um innflutning á afskornum blómum, (0603.1909) samtals 100.000 stk. og náðu umsóknir ekki tilteknum stykkjafjölda sem í boði var eða 166.250 stk. Úthlutað var án útboðs.

Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur atvinnuvega- og  nýsköpunararráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða/umsókna þeirra:

Blómstrandi pottaplöntur janúar - júní 2014

Magn (stk) Tilboðsgjafi
   1.000 Grænn markaður ehf
    1.100 Samasem ehf

Aðrar pottaplöntur janúar – júní 2014

Magn (stk) Tilboðsgjafi
1.000 Grænn markaður ehf
1.500 Samasem ehf

Rósir janúar – júní 2014

Magn (stk) Tilboðsgjafi
2.000 Samasem ehf

Tryggðablóm janúar – júní 2014

Magn (stk) Tilboðsgjafi
                 9.000 Samasem ehf

(Annars)  afskorin blóm janúar – júní 2014

Magn (stk) Tilboðsgjafi
50.000 Grænn markaður ehf
50.000 Samasem ehf

 

Reykjavík, 16. desember 2014  

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum