Byggðarannsóknasjóður auglýsir eftir styrkumsóknum
Í umsóknum skal meðal annars koma fram greinargóð lýsing á rannsókninni, markmiðum hennar, ávinningi, nýnæmi og hvernig hún styður við tilgang sjóðsins.
Við mat á umsóknum er meðal annars litið til hvernig verkefnið styður við markmið sjóðsins, vísindalegs- og hagnýts gildis þess og hæfni umsækjenda.
Rafrænt umsóknarform
Umsækjendur geta verið einstaklingar, fyrirtæki, rannsókna-, þróunar- og háskólastofnanir eða aðrir lögaðilar.
Styrkir verða veittir til eins árs. Til úthlutunar eru 10 m.kr. og samkvæmt reglum sjóðsins er miðað við að styrkirnir séu ekki færri en þrír og ekki fleiri en fimm í hvert sinn.
Hér má finna reglur Byggðarannsóknasjóðs og starfsreglur stjórnar sjóðsins.
Nánari upplýsingar veitir Hólmfríður Sveinsdóttir, netfang: [email protected]. Sími 545 8600.
Umsóknir þurfa að berast Byggðastofnun fyrir miðnætti 8. mars 2015.