Hoppa yfir valmynd
10. febrúar 2015 Atvinnuvegaráðuneytið

550 milljónir árlega til sóknaráætlana landshluta

Undirskrift á sóknaráætlunum
Undirskrift á sóknaráætlunum

Í dag var skrifað undir samninga um sóknaráætlanir landshluta fyrir tímabilið 2015-2019. Fyrir hönd ríkisins skrifuðu undir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson og mennta- og menningarmálaráðherra, Illugi Gunnarsson en fyrir hönd landshlutana átta, formenn eða framkvæmdarstjórar þeirra.  

Nokkur reynsla er komin af sóknaráætlunum landshluta enda hafa þær verið við líði í þrjú ár í núverandi formi. Nú er verið að sameina í einn samning verkefnin sóknaráætlanir landshluta, vaxtarsamninga og menningarsamninga. Heildarupphæð samningana ríflega 550 milljónir króna en til viðbótar mun mennta- og menningarmálaráðuneytið leggja til fjármagn til áframhaldandi reksturs menningarmiðstöðva á Austurlandi og Suðurlandi og einnig munu nokkrar sértækar fjárveitingar renna inn í sóknaráætlanir einstakra landshluta.  

Sigurður Ingi við undirritun sóknaráætlanaSóknaráætlanir fela í sér mikla nýbreytni í opinberri stjórnsýslu þar sem verið er að færa aukna ábyrgð á útdeilingu fjármagns til landshlutasamtaka sveitarfélaga. Jafnframt er verið að einfalda framlög til einstakra landshluta, gera þau gegnsærri og láta þau í auknum mæli taka mið af hlutlægum mælikvörðum varðandi stöðu svæðisins.

Undirskrift á sóknaráætlunum

 



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta