Hoppa yfir valmynd
12. mars 2015 Atvinnuvegaráðuneytið

Gleðilegan HönnunarMars

HönnunarMars
HönnunarMars

Hönnunarmars verður settur í sjöunda sinn í dag og fram á sunnudag mun Reykjavík iða af vel hönnuðu lífi og fjöri. 

Á HönnunarMars er hönnun kynnt sem atvinnugrein sem byggir á traustum grunni og gegnir veigamiklu hlutverki í samtímanum. Ríflega í 100 viðburðir eru á dagskrá hátíðarinnar; þar á meðal sýningar, fyrirlestrar, uppákomur og innsetningar. 

Á HönnunarMars sameinast allar greinar hönnunar; fatahönnun, arkitektúr, húsgagna- og innanhússhönnun, grafísk hönnun og vöruhönnun. Viðburðir hátíðarinnar eru skipulagðir af íslenskum hönnuðum og arktitektum, en þátttakendur hátíðarinnar telja um 400 ár hvert. Aukinn fjöldi erlendra þátttakenda kemur til landsins með hverju ári og tekur þátt í HönnunarMars.

Á HönnunarMars býðst tækifæri til að auðga andann og sækja innblástur. Hátíðin er orðin mikilvægt hreyfiafl í íslensku samfélagi og er viðskiptalegt vægi hátíðarinnar mjög mikið fyrir þátttakendur.


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta