Tækifæri í íslenskum landbúnaði samhliða aukinni alþjóðlegri eftirspurn
Fyrr í þessari viku gekk sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra frá skipun starfshóps sem hefur það hlutverk að koma með tillögur og ábendingar um það hvernig bregðast eigi við aukinni eftirspurn eftir matvælum og hækkandi verðlagi á erlendum mörkuðum. Starfshópurinn á jafnframt að móta tillögur um hvernig auka megi matvælaframleiðslu á Íslandi. Þá mun starfshópurinn einnig huga að nýsköpun og markaðs- og sölumálum.
Formaður hópsins er Sigurgeir Þorgeirsson, fyrrverandi ráðuneytisstjóri.
Starfshópurinn skal skila skýrslu til ráðherra eigi síðar en 1. október 2015.
Starfshópinn skipa:
- Sigurgeir Þorgeirsson, formaður
- Ásmundur Einar Daðason
- Baldvin Jónsson
- Birna Þorsteinsdóttir
- Brynhildur Pétursdóttir
- Daði Már Kristófersson
- Eiríkur Blöndal
- Haraldur Benediktsson
- Knútur Rafn Ármann
- Oddný Steina Valsdóttir
- Ragnheiður Héðinsdóttir