Fyrstu skrefin í einföldun regluverks í ferðaþjónustu; skráning heimagistingar einfölduð
Einstaklingum, hjónum og sambúðarfólki verður heimilt að leigja út lögheimili sitt auk einnar annarrar fasteignar í allt að átta vikur á ári samkvæmt frumvarpi sem Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, hefur lagt fyrir Alþingi til breytinga á lögum nr. 85/2007, um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald.
Með frumvarpinu er ætlunin að auðvelda skráningu á heimagistingu fyrir aðila sem eru nú þegar að leigja út heimili sín til ferðamanna hluta úr árinu. Heimilt verður að leigja lögheimili og frístundahús skv. frumvarpinu í allt að 8 vikur samtals á ári. Markmiðið er að fækka leyfislausum og óskráðum gististöðum og draga þannig úr svartri atvinnustarfssemi. Lögaðilum verður ekki heimilt að skrá sig í flokk heimagistingar.
Frumvarpið er samið af starfshópi ráðuneytisins sem í eiga sæti, auk fulltrúa iðnaðar- og viðskiptaráðherra, fulltrúar innanríkisráðuneytisins, Samtaka ferðaþjónustunnar, Ferðamálastofu og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Hópurinn hefur m.a. haft til viðmiðunar skýrslu Ferðamálastofu um einföldun starfsumhverfis og regluverks í ferðaþjónustu sem unnin var undir forystu Guðfinnu S. Bjarnadóttur á síðasta ári að beiðni iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Sú vinna var í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um einföldun regluverks atvinnulífsins sem unnið hefur verið markvisst að allt kjörtímabilið. Starfshópurinn er enn að störfum og er búist við frekari einföldunartillögum frá honum á næstu mánuðum.