Hoppa yfir valmynd
10. apríl 2015 Atvinnuvegaráðuneytið

Hrund Gunnsteinsdóttir er nýr stjórnarformaður Tækniþróunarsjóðs

Tækniþróunarsjóður
Tækniþróunarsjóður
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra skipaði í dag nýja stjórn Tækniþróunarsjóðs til næstu tveggja ára. 

Hlutverk sjóðsins er að styðja þróunarstarf og rannsóknir sem stuðla að nýsköpun í íslensku atvinnulífi og eflingu samkeppnishæfni landsins. Samkvæmt aðgerðaáætlun Vísinda- og tækniráðs verða stigin stór skref í átt að auknu nýsköpunar- og þróunarstarfi á Íslandi í framtíðinni. Framlög voru aukin á þessu ári og á því næsta er ráðgert að stórauka framlög til sjóðsins.

Formaður stjórnar er Hrund Gunnsteinsdóttir og er hún skipuð án tilnefningar.

Aðrir stjórnarmenn eru: Ragnheiður H. Magnúsdóttir, varaformaður, tilnefnd af Samtökum iðnaðins, Grímur Valdimarsson, tilnefndur af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Jakob Sigurðsson, tilnefndur af tækninefnd Vísinda- og tækniráðs, Pétur Reimarsson og Sigrún Lilja Guðbjartsdóttir, bæði tilnefnd af Samtökum atvinnulífsins.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta