Hoppa yfir valmynd
17. apríl 2015 Atvinnuvegaráðuneytið

Iðnaðar- og viðskiptaráðherra og Forseti Íslands ræða nýtingu jarðhita og loftlagsmál við franska ráðherra

Að loknum fundi með Laurent Fabius
Að loknum fundi með Laurent Fabius

Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra ávarpaði ráðstefnu Fransk-íslenska viðskiptaráðsins um nýtingu jarðhita og möguleika á samstarfi Íslands og Frakklands sem haldin var í París í gær.  Einnig fluttu ávörp forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, og Laurent Fabius utanríkisráðherra Frakklands.  Ráðherrarnir og forsetinn funduðu einnig sérstaklega um það hvernig ríkin tvö geti best starfað saman í aðdraganda COP21 ráðstefnunnar um loftslagsmál sem haldin verður í París í desember, en þar er markmiðið að ræða og efla tæknilausnir sem nauðsynlegar eru til að minnka losun koltvísýrings svo að fyrirsjáanleg hækkun hitastigs verði innan við 2C. 

Að loknum fundi með Segolene Royal Í morgun áttu forsetinn og iðnaðar- og viðskiptaráðherra fund með Segolene Royal ráðherra umhverfis- og orkumála og sjálfbærrar þróunar. Á fundinum var samstarf ríkjanna á sviði hagnýtingu jarðhita rætt en ljóst er að þar eru mikil tækifæri, ekki síst í ljósi þess að frönsk stjórnvöld stefna að því að umbreyta orkukerfin sínu á næstu árum og draga stórlega úr notkun kjarnorku og jarðefnaeldsneytis. Víða í Frakklandi er að finna jarðhita sem nýttur er til húshitunar, t.d. í París, en jarðhitinn er einnig nýttur til iðnaðar, s.s. fiskeldis og ræktunar í gróðurhúsum.  Ragnheiður Elín ítrekaði boð íslenskra stjórnvalda til ráðherrans um að sækja Ísland heim til þess að kynna sér jarðhitamálin frekar. 

Í næstu viku mun Ragnheiður Elín sitja alheimsráðstefnu um nýtingu  jarðhita sem haldin er í Melbourne í Ástralíu en um 100 Íslendingar sem starfa á þessu sviði munu sækja ráðstefnuna. Ráðstefnan er haldin á fimm ára fresti og verður ráðstefnan 2020 haldin á Íslandi. 

 Með Fransk-íslenska viðskiptaráðinu

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta