Hoppa yfir valmynd
17. apríl 2015 Atvinnuvegaráðuneytið

Veiðidagar verða 32 á grásleppuvertíðinni 2015

Sjávaúrútvegsráðuneytið hefur á undanförnum dögum fylgst náið með grásleppuveiðum í því skyni að geta áætlað veiði á yfirstandandi vertíð. Grásleppa

Samkvæmt ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar er miðað við að heildarveiði á grásleppu á vertíðinni fari ekki umfram 6.200 tonn.  Búið er að veiða rúman þriðjung af því heildarmagni. 

Veiði á hvern dag er nokkru meiri en á vertíðinni 2014 og þá hefur veiðileyfum fjölgað um 30%. Ekkert bendir því nú til annars en áætluðu heildarmagni verði náð innan 32 daga markanna!

Í fréttatilkynningu ráðuneytisins 1. apríl sl. var þess getið að ákvörðun um fjölgun veiðidaga í 32 yrði endurskoðuð þegar ætla mætti að betri yfirsýn fengist yfir fjölda leyfa og aflabrögð. Í ljósi framangreindra upplýsinga um veiðarnar hefur ráðuneytið ákveðið að veiðidögum verði hvorki fjölgað né fækkað, þeir verðið 32 á yfirstandandi vertíð.


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta