Hoppa yfir valmynd
8. júní 2015 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum fyrir tímabilið júlí - desember 2015

Mánudaginn 1. júní 2015 rann út tilboðsfrestur í tollkvóta á blómum vegna seinni hluta ársins 2015.

Þrjú tilboð bárust um innflutning á blómstrandi pottaplöntum á vörulið (0602.9091) samtals 3.350 stk. á meðalverðinu 90 kr./stk.  Hæsta boð var 125 kr./stk. en lægsta boð var 40 kr./stk. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 1.650 stk. á meðalverðinu 118 kr./stk.

 

Þrjú tilboð bárust um innflutning á blómstrandi pottaplöntum á vörulið (0602.9093) samtals 3.860 stk. á meðalverðinu 94 kr./stk.  Hæsta boð var 135 kr./stk. en lægsta boð var 40 kr./stk. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 2.160 stk. á meðalverðinu 119 kr./stk.

 

Eitt tilboð barst um innflutning á tryggðablómum (0603.1400) samtals 6.500 stk., á meðalverðinu 9 kr./stk.  Hæsta boð var 16 kr./stk. en lægsta boð var 1 kr./stk. Tilboði var tekið frá einu fyrirtæki um innflutning á 9.000 stk. á meðalverðinu 9 kr./stk.

 

Þrjár umsóknir bárust um innflutning á afskornum blómum, (0603.1909) samtals 80.000 stk. og náðu umsóknir ekki tilteknum stykkjafjölda sem í boði var eða 118.750 stk. Úthlutað var án útboðs.

 

Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur atvinnuvega- og  nýsköpunararráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða/umsókna þeirra:

 

Blómstrandi pottaplöntur júlí - desember 2015

Magn (stk) Tilboðsgjafi
   700 Garðheimar Gróðurvörur ehf
    950 Húsasmiðjan Blómaval ehf

 

Aðrar pottaplöntur júlí - desember 2015

Magn (stk) Tilboðsgjafi
   700 Garðheimar Gróðurvörur ehf
1.460 Húsasmiðjan Blómaval ehf

 

Tryggðablóm júlí - desember 2015

Magn (stk) Tilboðsgjafi
                 6.500 Samasem ehf

 

(Annars)  afskorin júlí - desember 2015

Magn (stk) Tilboðsgjafi
  6.000 Garðheimar Gróðurvörur ehf
24.000 Grænn markaður ehf
50.000 Samasem ehf

 

Reykjavík, 4. júní 2015 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum