Hoppa yfir valmynd
17. júlí 2015 Atvinnuvegaráðuneytið

Mjólk og mjólkurafurðir hækka í verði um 3,58%

Verðlagsnefnd búvara hefur tekið samhljóða ákvörðun um að heildsöluverð á mjólk og mjólkurafurðum, sem nefndin verðleggur, hækki 1. ágúst nk. um 3,58%, nema smjör sem hækkar um 11,6%.

Afurðastöðvaverð til bænda hækkar um 1,47 kr. á lítra mjólkur, úr 82,92 kr. í 84,39 kr. Þá hækkar vinnslu- og dreifingarkostnaður mjólkur um 4,27 kr. Samanlögð hækkun heildsöluverðs er því 5,74 kr. á hvern lítra mjólkur. 

Breytingin er til komin vegna kostnaðarhækkana sl. tveggja ára við framleiðslu og vinnslu mjólkur, en síðasta verðbreyting fór fram 1. október 2013.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á hjalp@utn.is

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta