Hoppa yfir valmynd
23. júlí 2015 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður um úthlutun á EFTA tollkvóta 2015-2016

Mánudaginn 20. júlí 2015 rann út umsóknarfrestur um EFTA tollkvótum á landbúnaðarvörum frá Noregi og Sviss, vegna innflutnings á nautakjöti úr vörulið ex0210.xxxx fyrir tímabilið júlí 2015 – júní 2016.

Samtals bárust umsóknir frá tveimur aðilum um tollkvótann. Til útboðs kom á tollkvótum á nautakjöti úr vörulið ex0210.xxxx þar sem umsótt magn var meira en það magn sem í boði var.

Samtals barst eitt gilt tilboð í tollkvótann.

Eitt tilboð barst um innflutning á nautakjöti, samtals 5.000 kg á meðalverðinu 4 kr./kg.  Hæsta boð var 5 kr./kg en lægsta boð var 3 kr./kg. Tilboðum var tekið frá einu fyrirtæki um innflutning á 5.000 kg á meðalverðinu 4 kr./kg.

Ein umsóknir barst um innflutning ostum, samtals 5.000 kg. Ekki kom til útboðs þar sem umsóknir náðu ekki því magni sem í boði var eða 15.000 kg.

Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækis á grundvelli tilboða og/eða umsókna þeirra:

Nautakjöt fyrir tímabilið júlí 2015 – júní 2016

Magn (kg) Tilboðsgjafi
  5.000 Íslenskar matvörur hf.

 

Ostur fyrir tímabilið júlí 2015 – júní 2016

Magn (kg) Tilboðsgjafi
    5.000 Íslenskar matvörur ehf.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum