Tillögur um fullorðins- og framhaldsfræðslu og um stefnumótun í náms- og starfsráðgjöf
Birtar hafa verið skýrslur verkefnahóps um fullorðins- og framhaldsfræðslu og starfshóps um stefnumótun í náms- og starfsráðgjöf
Viðfangsefni verkefnahóps um fullorðins- og framhaldsfræðslu var að móta tillögur að úrbótum og breytingum á námsframboði fyrir fullorðna sem ekki hafa lokið námi í framhaldsskóla. Verkefninu var einnig ætlað að móta tillögur að heildstæðu kerfi náms sem gefur fullorðnum möguleika á að ljúka námi með tilliti til hækkaðs menntunarstigs, eigin starfsþróunar og náms sem hefur skilgreind námslok.
Starfshópur um stefnumótun í náms- og starfsráðgjöf gerði í skýrslu sinni tillögur um framtíðarsýn, stefnu og aðgerðir fyrir náms- og starfsráðgjöf á Íslandi. Starfshópurinn var skipaður í maí 2014. Í honum sátu fulltrúar mennta- og menningarmálaráðuneytis, velferðarráðuneytis, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis og Félags náms- og starfsráðgjafa.
Ráðuneytið hefur nú framangreindar skýrslur til athugunar en hefur ekki tekið afstöðu til þeirra og birtir þær með þeim fyrirvara.