Hoppa yfir valmynd
6. nóvember 2015 Matvælaráðuneytið

Verkefnisstjórn falið að ræða við bresk stjórnvöld

Raflínur
Raflínur

Á fundi forsætisráðherra Íslands og Bretlands 28. október var ákveðið að setja af stað vinnu á milli landanna í að kanna mögulega raforkutengingu til Bretlands í gegnum sæstreng og að könnuð yrðu nánar þau efnahagslegu og félagslegu áhrif sem lagning sæstrengs gæti haft í för með sér. 

Nú þegar er að störfum á vegum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis verkefnisstjórn sem hefur það hlutverk að hafa yfirumsjón með framgangi ákveðinna verkefna um áhrifaþætti sæstrengs.

Á fundi ríkisstjórnar í morgun var samþykkt að verkefnisstjórnin taki einnig við því verkefni að eiga könnunarviðræður við Breta um lagningu sæstrengs. Verkefnisstjórnin verður stækkuð af því tilefni og í hana bætast fulltrúar frá forsætisráðuneyti og fjármála- og efnahagsráðuneyti. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið mun áfram leiða vinnuna en hún felst í könnunarviðræðum við aðila sem bresk stjórnvöld tilnefna í verkefnið um verðlagningu, fjármögnun og regluverk við lagningu sæstrengs. Tekið hefur verið fram að athugun á verkefninu er á frumstigi á Íslandi og ákvörðun um framhald þess mun krefjast mikillar yfirlegu og umræðu.

Stefnt er að því að verkefnisstjórnin skili niðurstöðum úr þessum könnunarviðræðum innan sex mánaða.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum