Hoppa yfir valmynd
17. nóvember 2015 Forsætisráðuneytið

Gripið verður til aðgerða til að styðja við byggð í Grímsey

Ríkisstjórn Íslands ákvað á fundi sínum í morgun, að tillögu forsætisráðherra, að grípa til samþættra aðgerða til að styðja við byggð í Grímsey. Í fyrsta lagi með því að styrkja stöðu útgerðar frá Grímsey, í öðru lagi með því að bæta samgöngur við Grímsey, í þriðja lagi með því að framkvæma hagkvæmniathugun á lækkun húshitunarkostnaðar og í fjórða lagi með verkefninu „Brothættar byggðir“.

Hinn 20. ágúst sl. samþykkti ríkisstjórn Íslands, að tillögu forsætisráðherra, að setja á laggirnar vinnuhóp til að skoða stöðu Grímseyjar í ljósi fyrirliggjandi tillagna frá aðgerðarhópi Akureyrarbæjar. Það er mat vinnuhópsins að byggð í Grímsey muni eiga undir högg að sækja komi ekki til aðgerða stjórnvalda nú. Vinnuhópurinn var skipaður fulltrúum frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu (sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og iðnaðar- og viðskiptaráðherra), innanríkisráðuneytinu og forsætisráðuneytinu sem leiddi hópinn.

„Það er áríðandi að bregðast við þeirri erfiðu stöðu sem uppi hefur verði í Grímsey undanfarin ár. Heimamenn óttast að ef ekkert verði að gert leggist útgerð í Grímsey af og jafnvel búseta í framhaldi af því.

Ég hef trú á að með þessum aðgerðum sem nú liggja fyrir og byggja að talsverðu leyti á tillögum heimamanna verði unnt að styðja við áframhaldandi búsetu í þessari nyrstu byggð landsins. Sérstaða eyjunnar er óumdeild.“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra.

Vinnuhópurinn heimsótti Grímsey dagana 19. – 20. október sl. og kynnti drög að tillögum fyrir heimamönnum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum