Styrkir til grunnnáms í listdansi
Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um rekstrarstyrki til dansskóla sem kenna listdans samkvæmt aðalnámskrá fyrir listdansskóla.
Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um rekstrarstyrki til dansskóla sem kenna listdans samkvæmt aðalnámskrá fyrir listdansskóla. Styrkjunum er ætlað að efla framboð grunnnáms í listdansi. Skilyrði fyrir styrkveitingu er að skólinn hafi hlotið viðurkenningu ráðuneytisins á starfseminni samkvæmt viðmiðum sem ráðuneytið hefur sett.
Umsókn um rekstrarstyrk þurfa að fylgja upplýsingar um nemendafjölda og skólagjöld. Nánari leiðbeiningar um frágang umsókna eru á umsóknareyðublaði á vef ráðuneytisins, http://www.menntamalaraduneyti.is/afgreidsla/sjodir-og-eydublod/menntamal/nr/3665
-
Umsóknarfrestur er til 20. desember 2015