Hoppa yfir valmynd
11. desember 2015 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Auglýsing frá Sænsk-íslenska samstarfssjóðnum

Árið 2016 verða veittir úr Sænsk-íslenska samstarfssjóðnum ferðastyrkir til að styðja íslenska þátttakendur í sænsk-íslenskum verkefnum.

Árið 2016 verða veittir úr Sænsk-íslenska samstarfssjóðnum ferðastyrkir til að styðja íslenska þátttakendur í sænsk-íslenskum verkefnum. Markmið sjóðsins er að stuðla að auknu samstarfi Svíþjóðar og Íslands á sviði vísinda, menntunar og menningar.

  • Um styrki þessa skal sótt á sérstökum eyðublöðum sem er að finna á vefslóðinni norden.se
  • Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2016 og skal skila umsóknum samkvæmt upplýsingum á heimasíðu sjóðsins.
    Styrkjum verður úthlutað í apríl nk.

Stjórn sænsk- íslenska samstarfssjóðsins, 10. desember 2015.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum