Gæðaviðurkenningar Erasmus+
Gæðaviðurkenningar menntaáætlunar Evrópusambandsins voru veittar við hátíðlega athöfn í Ásmundarsafni þann 10. desember. Tíu verkefni, sem hafa verið styrkt af áætluninni, hlutu viðurkenningarnar í ár. Verkefnin eiga það sammerkt að hafa sýnt fram á nýsköpun og nýbreytni í menntun, stuðlað að þátttöku fjölbreyttra hagsmunahópa í alþjóðasamstarfi og haft áhrif á skólastarf einstakra stofnana sem og víðtækari áhrif í skólasamfélaginu.
Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, veitti viðurkenningarnar sem eru í formi myndverka sem hönnuð voru af 15 nemendum á öðru ári í teiknideild í Myndlistarskóla Reykjavíkur.
Verkefnin sem hljóta gæðaviðurkenningarnar 2015 eru:
eTwinning
-
Hvað finnum við undir fótum okkar? Heilsuleikskólinn Krókur, Grindavík
Sækja einblöðung -
Lesum heiminn, Leikskólinn Holt, Reykjanesbær
Sækja einblöðung
Erasmus+
-
Sterkari saman, Lundarskóli, Akureyri
Sækja einblöðung -
Að byggja brú milli leik- og grunnskóla, Sveitarfélagið Skagafjörður
Sækja einblöðung -
Íslenskir iðnnemar í vinnustaðanámi í Evrópu, Iðan fræðslusetur
Sækja einblöðung -
Starfsfóstri, Verkmenntaskólinn á Akureyri
Sækja einblöðung -
Sumarskóli Rannsóknarseturs um smáríki, Háskóli Íslands
Sækja einblöðung -
Erasmus stúdenta- og starfsmannaskipti, Listaháskóli Íslands
Sækja einblöðung -
Fegurð hannyrðanna, Þingborg ullarvinnsla
Sækja einblöðung -
Art-is, Sólheimar
Sækja einblöðung
Nánari upplýsingar um öll tilnefnd verkefni og ítarlegri upplýsingar um verðlaunaverkefnin.
Fleiri myndir frá verðlaunaafhendingunni