Hoppa yfir valmynd
14. desember 2015 Matvælaráðuneytið

Niðurstaða úthlutunar á ESB tollkvótum á landbúnaðarafurðum fyrir tímabilið janúar – desember 2016

Miðvikudaginn 9.desember 2015 rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarafurðum frá Evrópubandalaginu fyrir tímabilið janúar – desember 2016.

Samtals bárust sautján gild tilboð í tollkvótann.

Nautgripakjöt í vörulið 0202. Tólf tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á nautgripakjöti, samtals 437.500 kg. á meðalverðinu 198 kr./kg. Hæsta boð var 701 kr./kg. en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá níu fyrirtækjum um innflutning á 100.000 kg. á meðalverðinu 560 kr./kg.

Svínakjöt í vörulið 0203. Ellefu tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á svínakjöti, samtals 569.750 kg. á meðalverðinu 157 kr./kg. Hæsta boð var 333 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá fjórum fyrirtækjum um innflutning á 200.000 kg. á meðalverðinu 255 kr./kg.

Alifuglakjöt, í vörulið 0207. Þrettán tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á alifuglakjöti, samtals 867.000 kg á meðalverðinu 364 kr./kg. Hæsta boð var 720 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá fimm fyrirtækjum um innflutning á 200.000 kg á meðalverðinu 619 kr./kg.

Kjöti og ætum hlutum af dýrum, saltað í saltlegi, þurrkað eða reykt;...(**) í vörulið ex 0210. Átta tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á kjöti og ætum hlutum af dýrum, saltað í saltlegi, þurrkað eða reykt;...(**), samtals 99.000 kg. á meðalverðinu 128 kr./kg. Hæsta boð var 250 kr./kg. en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá sjö fyrirtækjum um innflutning á 50.000 kg. á meðalverðinu 182 kr./kg.

Ostar og ystingur í vörulið 0406. Tíu tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á ostum og ystingi á vörulið 0406, samtals 195.300 kg. á meðalverðinu 366 kr./kg. Hæsta boð var 495 kr./kg. en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá fimm fyrirtækjum um innflutning á 80.000 kg. á meðalverðinu 458 kr./kg.

Ostur og ystingur í vörulið ex 0406;...(**). Átta tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á ostum og ystingi á vörulið ex 0406...(**) samtals 80.000 kg. á meðalverðinu 318 kr./kg. Hæsta boð var 507 kr./kg. en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 20.000 kg. á meðalverðinu 474 kr./kg.

Pylsur og þess háttar vörur úr kjöti.... í vörulið 1601. Níu tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á pylsum og þess háttar vörum úr kjöti.... á vörulið 1601, samtals 122.000 kg. á meðalverðinu 149 kr./kg. Hæsta boð var 300 kr./kg. en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá átta fyrirtækjum um innflutning á 50.000 kg. á meðalverðinu 204 kr./kg.

Annað kjöt.... í vörulið 1602. Ellefu tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á öðru kjöti.... á vörulið 1602, samtals 225.000 kg. á meðalverðinu 408 kr./kg. Hæsta boð var 803 kr./kg. en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá fimm fyrirtækjum um innflutning á 50.000 kg. á meðalverðinu 725 kr./kg.

Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur atvinnuvega- og nýsköpunarráðu-neytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða og/eða umsókna þeirra:

Kjöt af nautgripum, fryst, 0202

Magn (kg) Tilboðsgjafi
30.000 Aðföng
20.000 Innnes ehf
5.000 Íslenskar matvörur ehf
2.000 Kjarnafæði ehf
10.000 Kaupás ehf
2.000 Perlukaup ehf
7.500 Samkaup hf
21.500 Sælkeradreifing ehf
2.000 Ölgerðin ehf

Svínakjöt, fryst, 0203

Magn (kg) Tilboðsgjafi
1.000 Innnes ehf
60.000 Kaupás ehf
138.750 Mata ehf
250 Sælkeradreifing ehf

Kjöt af alifuglum, fryst, 0207

Magn (kg) Tilboðsgjafi
127.273 Aðföng hf
5.000 Innnes ehf
32.727 Kaupás ehf
15.000 Mata ehf
20.000 Sælkeradeifing ehf

Kjöt og ætir hlutar af dýrum.. ex 0210

Magn (kg) Tilboðsgjafi
13.000 Aðföng hf
4.000 Innnes ehf
3.000 Íslenskar matvörur ehf
2.500 Kaupás ehf
15.000 Mosa heildverslun ehf
500 Samkaup hf
12.000 Sælkeradreifing ehf

Ostur og ystingur 0406

Magn (kg) Tilboðsgjafi
19.700 Aðföng hf
40.000 Innnes ehf
10.000 Kaupás ehf
300 Mini market ehf
10.000 Mjólkursamsalan

Ostur og ystingur ex 0406

Magn (kg) Tilboðsgjafi
14.000 Innnes ehf
6.000 Kaupás ehf

Pylsur og þess háttar vörur 1601

Magn (kg) Tilboðsgjafi
14.000 Aðföng hf
3.000 Innnes ehf
7.000 Íslenskar matvörur ehf
2.000 Kaupás hf
3.000 Market ehf
14.000 Mini Market ehf
2.000 Samkaup hf
5.000 Sælkeradreifing ehf

Annað kjöt, hlutar úr dýrum.. 1602

Magn (kg) Tilboðsgjafi
2.000 Innnes ehf
10.000 Íslenskar matvörur ehf
20.000 Kaupás ehf
3.000 Mini Market ehf
15.000 Sælkeradreifing ehf

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum