Hoppa yfir valmynd
22. desember 2015 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum fyrir tímabilið janúar – júní 2016

Mánudaginn 21. desember 2015 rann út tilboðsfrestur í tollkvóta á blómum vegna fyrri hluta ársins 2016.

Þrjú tilboð bárust um innflutning á blómstrandi pottaplöntum á vörulið (0602.9091) samtals 3.800 stk., á meðalverðinu 102 kr./stk. Hæsta boð var 125 kr./stk. en lægsta boð var 75 kr./stk. Tilboði var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 2.200 stk. á meðalverðinu 117 kr./stk.

Þrjú tilboð bárust um innflutning á blómstrandi pottaplöntum á vörulið (0602.9093) samtals 4.500 stk., á meðalverðinu 112 kr./stk. Hæsta boð var 135 kr./stk. en lægsta boð var 95 kr./stk. Tilboði var tekið frá þremur fyrirtækjum um innflutning á 3.000 stk. á meðalverðinu 120 kr./stk.

Þrjú tilboð bárust um innflutning á rósum (0603.1100) samtals 4.350 stk., á meðalverðinu 45 kr./stk. Hæsta boð var 50 kr./stk. en lægsta boð var 40 kr./stk. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 2.000 stk. á meðalverðinu 50 kr./stk.

Tvö tilboð bárust um innflutning á tryggðablómum (0603.1400) samtals 9.400 stk., á meðalverðinu 9 kr./stk. Hæsta boð var 50 kr./stk. en lægsta boð var 1 kr./stk. Tilboði var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 9.000 stk. á meðalverðinu 10 kr./stk.

Fjórar umsóknir bárust um innflutning á afskornum blómum, (0603.1909) samtals 123.325 stk. og náðu umsóknir ekki tilteknum stykkjafjölda sem í boði var eða 166.250 stk. Úthlutað var án útboðs.

Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur atvinnuvega- og nýsköpunararráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða/umsókna þeirra:

Blómstrandi pottaplöntur janúar - júní 2016

Magn (stk) Tilboðsgjafi
600 Garðheimar – gróðurvörur ehf
1.600 Húsasmiðjan Blómaval ehf

Aðrar pottaplöntur janúar – júní 2016

Magn (stk) Tilboðsgjafi
500 Garðheimar – gróðurvörur ehf
500 Grænn markaður ehf
2.000 Húsasmiðjan Blómaval ehf

Rósir janúar – júní 2016

Magn (stk) Tilboðsgjafi
298 Blómabúð Akureyrar ehf
1.702 Grænn markaður ehf

Tryggðablóm janúar – júní 2016

Magn (stk) Tilboðsgjafi
400 Blómabúð Akureyrar ehf
8.600 Samasem ehf

(Annars) afskorin blóm janúar – júní 2016

Magn (stk) Tilboðsgjafi
3.325 Blómabúð Akureyrar ehf
10.000 Garðheimar gróðurvörur ehf
60.000 Grænn markaður ehf
50.000 Samasem ehf

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum